Nightmare Dawn

 





Upprunalegt nafn Sylvester Light.

Sjötti æðsti skapari og þar með sá lægsti í röðinni en lætur eins og hann ráði öllu.  Er undir gríðarlegri pressu að halda æðsta skapara sætinu í fjölskyldunni, þar sem það hafði í heilar tvær kynslóðir misst af því vegna glæpsins sem að langafi hans, Horror Dawn framdi.

Myndin sem hangir uppi af langafa Nightmare, Horror Dawn í hásætissal æðstu skaparanna.  Nightmare er sagður líkjast honum í útliti og hegðun.

Ásamt því að vera æðsti skapari, er Nightmare líka leyfissköpunarkennari og umsjónarkennari A-bekks,  þeirra sem skara fram úr námi.



TegundHeill skapari
Aldur: 79
Máttur: Ekki vitað en líklegast vatn.
Foreldrar: Strangtrúaðir Hreinsarar, Sóphía Light eldri og Tómas Light eldri. Látin.
Maki: Crea-Ta (upprn. Tamíra Guilt Creator, kölluð Tammý). Tekin af lífi fyrir að vita hættulegan sannleik.
Systkini: Yngri bróðir og uppeldissonur Sydney Dawn, 35 ára.
Börn: Einn sonur, Tómas Light Dawn, 35 ára.
Barnabarn: Sóphía Light og þó hann segi það ekki upphátt, þá lítur hann líka á Phílí sem barnabarn sitt, þar sem afi hans var besti vinur hans.


Elskar/þolir: Hunda, skriffinnsku, að finna upp tæki, fjölskyldu sína þó hann sýni það ekki og þá sem hann telur sem fjölskylduna sína, sem hann sýnir reyndar ekki heldur, heldur mikið upp á afbragðs nemendur og var systir Phílís, Anna Rís Fíl uppáhalds nemandi hans.  Það var honum því mikið áfall þegar að hún fannst látin fyrir tveimur árum síðan.
Hatar/þolir ekki: guðinn Sunrise, tortímendur, Línu (það er þó ekkert persónulegt), reglubrjótara, mótmælendur, þá sem ógna friðinum, createísinn og alla tímaþjófa.  Fólk með engan metnað. Að vera æðsti skapari.  Að Tea skuli vera svona mikil raggeit og ekki passa betur upp á að fjölskyldan sé ekki að ógna friðinum.

Dreymir um eilífan frið.

Færðu inn athugasemd