Um höfundinn

Rósa Grímsdóttir er fædd 24.mars 1987 og er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hún hefur sótt námskeið í sagnfræði, heimspeki og bókmenntum í Háskóla Íslands. Ritlist og myndlist eru hennar stærstu árstríður. Sumarið 2012, útskrifaðist Rósa af myndlistar- og hönnunarsviði (fornáminu) í Myndlistarskóla Reykjavíkur. Rósa hefur sótt ýmis námskeið, eins og myndlýsinga- og bókagerðar, ritsmiðju Kópavogs, kvikmyndahandritagerð hjá Endurmenntun Háskóla Íslands, teikni-, málun og svo mætti lengi telja.  Í haust byrjar Rósa nám sitt á handrita og leikstjórnardeild í Kvikmyndaskóla Íslands. Hún vinnur nú að myndbandaskáldsögu ásamt bróður sínum.

Rósa hefur unnið marvísileg störf og komið víða við á skapandi vinnumarkaðnum, meðal annars verið ritstjóri bókarinnar Gráfeldur- æviár guðslegs gneista (2006), hugmyndasmiður og aðstoðarmaður leikstjóra (Fjölskyldusirkusinn, vorið 2006) og unnið við hlið arkitekta í Skyggni Frábært við að hanna innsetningar fyrir borgarrými.

Rósu hafði dreymt um að vera rithöfundur frá því hún var sex ára og rættist sá draumur 2011, þegar hún gaf sína fyrstu bók í myndskreytta ,,young adult“ furðusagna bókaflokknum um skaparatortímandann Línu Descret.  Rithringurinn hefur verið sem annað heimili Rósu frá því að hún fór inn á hann í ágúst 2004. Margir meðlimir hringsins voru henni ómetanleg hjálp við að koma fyrstu bók hennar á laggirnar (þar af eru tveir þeirra hluti af smásagnahópnum) en án alls þessa frábæra fólks hefðu smásagnasöfn Rithringsins aldrei orðið að veruleika. Lengi lifi Rithringurinn!

Útgefið efni

Lína Descret: Saga af skapara og tortímanda ( gefið út 2011)
Smásögur 2012 (Meðstjórnandi og með tvær sögur í safninu)
Smásögur 2013: Þetta var síðasti dagur lífs míns (Stjórnandi og með sögu í safninu)

Færðu inn athugasemd